Translation for '
kuba' from Icelandic to English
1 translation
To translate another word just start typing!
Usage Examples Icelandic
- 1971 kvað Alþjóðadómstóllinn upp úr með að stjórn Suður-Afríku í Namibíu væri ólögleg en Suður-Afríka neitaði að gefa yfirráð sín eftir. 1978 reyndu Vesturlönd að eiga milligöngu um diplómatíska lausn vandans en Suður-Afríka lét halda kosningar í landinu í trássi við samþykktir Sameinuðu þjóðanna og hélt áfram að stjórna landinu. Málið var í járnum þar til ákveðið var á fundi Ronald Reagan og Mikhaíl Gorbatsjev árið 1988 að Kúba myndi draga herlið sitt frá Angóla um leið og Suður-Afríka drægi sitt lið frá Namibíu og 22. desember 1988 voru New York-samningarnir undirritaðir. Þeir fólu í sér annars vegar samning Kúbu og Angóla og þríhliða samning milli Kúbu, Angóla og Suður-Afríku þar sem Suður-Afríka samþykkti að láta Sameinuðu þjóðunum stjórn Namibíu eftir.
- Landamæralaust land er eyríki sem deilir ekki eyjunni eða eyjunum sem það er staðsett á með öðru landi, dæmi um land sem er eyríki en ekki landamæralaust er Írska lýðveldið (deilir eyjunni með Bretlandi), stundum er umdeilt er hvort sum lönd eru landamæralaus eða eyríki, eitt slíkt tilfelli er Kúba en Bandaríkin hafa yfirráð yfir Guantanamo-flóa á Kúbu.
- Kúba varð mjög fljótt staður þar sem hinir auðugu komu til að skemmta sér og græða pening. Bandarísk fyrirtæki réðu yfir um 90% af rafmagni og síma á eyjunni, 50% af járnbrautum og 40% af sykurframleiðslunni og var því Kúba mjög háð Bandaríkjunum, sérstaklega þar sem sykurframleiðslan var og er enn undirstaða efnahags á Kúbu. Vegna nálægðar Kúbu við Bandaríkin sáu Sovétmenn leik á borði til að ógna Bandaríkjunum.
- Vegna þeirrar ákvörðunar Bandaríkjamanna að hunsa Ólympíuleikana í Moskvu 1980 ákváðu fjórtán lönd í Austurblokkinni og bandamenn þeirra að hunsa þessa ólympíuleika. Þar á meðal voru Sovétríkin, Austur-Þýskaland og Kúba. Íran og Líbýa hunsuðu einnig leikana, en af öðrum ástæðum. Þessi lönd skipulögðu Vináttuleikana í níu löndum Ólympíuleikunum til höfuðs.
- Á 9. áratugnum varð róðurinn æ þyngri fyrir kommúnistana í Sovétríkjunum og fylgiríkjum þeirra í Austur-Evrópu. Stjórnkerfið var þunglamalegt og stóðst kapítalískum Vesturlöndum ekki snúning. Umbætur Gorbatjofs komu of seint og voru ekki nógu djúptækar til að hægt væri að bjarga þessum samfélagskerfum við. Á árunum 1989 - 1991 féllu allar kommúnistastjórnir í Evrópu. Eftir standa fáein ríki sem enn aðhyllast hugsjónir kommúnismans þó það sé oft ekki annað en í orði. Þau eru Kína, Kúba, Laos, Norður-Kórea og Víetnam.
- Eftir Kúbudeiluna var Kúba örugglega á áhrifasvæði Sovétríkjanna sem keyptu útflutningsvörur þeirra og styrktu efnahag landsins með ýmsum hætti. Eftir fall Sovétríkjanna 1989 lenti Kúba í alvarlegum efnahagsþrengingum þegar viðskiptabannið fór fyrir alvöru að segja til sín. Frá 1991 hefur allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fordæmt viðskiptabannið á hverju ári.
- "Juniperus barbadensis" er tegund af barrtré í einisætt. Uppruninn frá Vestur-Indíum (Bahamaeyjar, Kúba, Jamaíka og St. Lúsíuey).
- Borgarastríðið í El Salvador (1979 – 1992) voru átök á milli hers ríkisstjórnar El Salvador, sem Bandaríkin studdu, og uppreisnarmanna í bandalaginu Farabundo Martí National Liberation Front (FMLN), sem var bandalag fimm vinstrisinnaðra skæruliðahópa. Kúba og önnur kommúnistaríki studdu uppreisnarmennina. Veruleg spenna og ofbeldi höfðu verið til staðar áður en að borgarastríðið skall á og varði í tólf ár.
- Menningarlega er Kúba hluti Rómönsku Ameríku. Kúba er fjölmenningarríki þar sem íbúar, menning og siðir eiga sér fjölbreyttar rætur í menningu frumbyggja eyjarinnar, langri nýlendusögu, þrælahaldi og nánum tengslum við Sovétríkin á tímum Kalda stríðsins.
- Orðið "þróunarland" er umdeilt, enda það gefur í skyn að þróunarlönd séu að nokkru leyti undir "þróuðum löndum", sem mörg ríki hafa mótmælt. Það gerir líka ráð fyrir vestrænu þróunarmódeli sem nokkur lönd á borð við Kúba og Bútan hafa valið að fylgja ekki. Stungið hefur verið upp á að nota mælikvarða eins og landshamingju (e. "gross national happiness") í staðinn. Lönd sem eru einhvers staðar á milli stöðu þróunarlands og þróaðs lands flokkast oft sem nýiðnvædd lönd (e. "newly-industrialised countries").
- Samtök Ameríkuríkja (enska: "Organization of American States"; spænska: "Organización de los Estados Americanos"; franska: "Organisation des États Américains"; portúgalska: "Organização dos Estados Americanos"; skammstafað: OAS eða OEA) eru alþjóðasamtök 35 Ameríkuríkja með höfuðstöðvar í Washingtonborg í Bandaríkjunum. Samtökin voru stofnuð árið 1948 upp úr tveimur eldri samtökum. Markmið samtakanna er að efla samvinnu og samstöðu meðal Ameríkuríkja og standa vörð um sjálfstæði þeirra og landamæri gagnvart utanaðkomandi ógn. Öll þau 35 Ameríkuríki sem eru sjálfstæð eru aðilar að samtökunum. Þó hefur Kúba ekki haft rétt til virkrar þátttöku í samtökunum síðan 1962 eftir að samtökin ályktuðu að frumkvæði Bandaríkjanna að marx-lenínismi samræmdist ekki markmiðum samtakanna og að aðildarríki með ríkisstjórn sem aðhyllist þá hugmyndafræði mættu ekki taka þátt í starfi samtakanna.
- Samtök um gagnkvæma efnahagsaðstoð oftast neft COMECON á íslensku (úr ensku: "Council for Mutual Economic Assistance"; rússneska: Совет экономической взаимопомощи, "Sovjet ekonomítsjeskoj vsaímopomossji") var efnahagsbandalag kommúnistaríkja á tímum Kalda stríðsins. Bandalagið var stofnað 1949 sem svar Austurblokkarinnar við Efnahags- og framfarastofnuninni sem var stofnuð árið áður. Aðild var lengst af bundin við Sovétríkin og kommúnistaríkin í Austur- og Mið-Evrópu en 1972 fékk Kúba inngöngu og 1978 Víetnam. Önnur kommúnistaríki áttu sum áheyrnarfulltrúa á þingum samtakanna. Eftir byltingarárið 1989 var COMECON varla til nema að nafninu og á síðasta fundi samtakanna 28. júní 1991 var samþykkt að leggja þau niður.
© dict.cc Icelandic-English dictionary 2026
Contains translations by TU Chemnitz and Mr Honey's Business Dictionary (German-English only).
Links to this dictionary or to individual translations are very welcome!