Translation for '
lima' from Icelandic to English
1 translation
To translate another word just start typing!
Usage Examples Icelandic
- Nákuðungurinn er afræningi (rándýr) og kjötæta sem notar skráptunguna til að vinna á bráðinni og framleiðir einnig lamandi vökva sem slævir hana. Aðal fæða hanns er fjörukarl (hrúðurkarl) og litlir kræklingar. Aðferð hans er að reka skráptunguna inn á milli skelja bráðarinnar og ná þannig til dýrsins inn í henni. Ef það dugir ekki til notar hann skráptunguna til að bora gat á skelina, rekur hana svo inn um gatið og étur. Það getur tekið hann langan tíma að vinna á skelinni, jafnvel nokkra daga. Kræklingurinn getur þó varið sig fyrir nákuðungnum með því að líma við hann festuþræði til að gera honum allar hreyfingar erfiðari.
- CA lím hefur verið notað til að líma saman sár, það var notað í sár særðra hermanna í Víetnamstríðinu til að minnka blæðingu þar til þeir komust á sjúkrahús.
- Skrifstofuhugbúnaður eða skrifstofuvöndull er safn notendaforrita sem ætluð eru til notkunar í almenna skrifstofuvinnu. Algengast er að skrifstofuhugbúnaður innihaldi að minnsta kosti ritvinnsluforrit og töflureikni. Venjulega er skrifstofuhugbúnaður hannaður þannig að notendaviðmót er sambærilegt milli forrita og oft eru skáarsniðin þannig samhæfð að hægt sé að afrita og líma hluta úr skjölum milli ólíkra forrita innan safnsins. Skrifstofuhugbúnaður er oft hannaður út frá safni staðlaðra hluta sem eru samnýttir af forritum safnsins.
- Lím er vökvi sem er stundum þykkur og notaður til að líma eða tengja muni saman. Lím getur verið náttúrulegt eða tilbúið. Sum nútímalím eru geysilega sterk og eru mikilvæg í mannvirkjagerð og iðnaði. Allar tegundir efna geta verið límdar en það er sérstaklega gagnlegt til að líma þunnt efni. Yfirleitt þarf lím yfirvegaðan hita til þess að það bindi. Lím geta leitt hita eða rafmagn eða alls ekki.
- Mirror er vinsæl flatbotna einmenningskæna hönnuð af breska skútuhönnuðinum Jack Holt og sjónvarpsmanninum Barry Bucknell árið 1962. Hún heitir eftir breska dagblaðinu "Daily Mirror" sem styrkti verkefnið. Þeir notuðu nýja tækni við smíðina sem fólst í því að hefta og líma saman krossviðarborð. Hönnunin miðaðist við að hægt væri að smíða kænuna með einföldum verkfærum. Hún er til dæmis með flötu stefni sem gerir hana auðveldari í smíðum. Upphaflega var hún með gaffalsegl en nú orðið er algengara að notast við bermúdasegl og álmastur.
- Kristján Kristjánsson vinnur einkum í form sem nefnist collage en það er dregið af franska orðinu "coller" sem þýðir "að líma" og sem nær yfir allar tegundir listrænna hluta sem skeyttir eru saman í eina heild. Kristján hefur í gegnum tíðina unnið ýmsar myndskreytingar á útgefið efni svo sem blöð og tímarit, hljómplötuumslög (Megas og Mannakorn), kort og auglýsingar.
- Læknar innan nasista gerðu ýmsar tilraunir á gyðingum í Auschwitz. Til að mynda prófuðu þeir áhrif röntgengeisla sem vönunartæki á kvenkyns föngum. Doktor prófessor Carl Clauberg gerði tilraunir til að líma saman leggöngin á konum með því að sprauta ýmsum efnum inn í þau. Þýska lyfjafyrirtækið Bayer, þá dótturfyrirtæki lyfjafyrirtækisins IG Farben, keypti fanga til að nota sem tilraunadýr til að prófa ný lyf. Frægasti læknirinn innan veggja Auschwitz var Josef Mengele, einnig kallaður „engill dauðans“. Hann hafði miklar mætur á tvíburum og dvergum. Prófaði hann þá að sprauta þá með drepi til að athuga hvernig líkaminn brygðist við. Einnig sprautaði hann annan tvíburann með sjúkdóm, drap svo hinn eftir að sá fyrri dó og gerði svo samanburðarkrufningu.
- Krossviður er unninn viður sem búinn er til með því að líma saman lög af viðarspæni. Krossviður er plötuefni og er mikið notaður í byggingariðnaði og við hvers kyns smíðar. Stundum er hann framleiddur þannig að lög úr harðari og mýkri viði skiptast á og krossviður er yfirleitt framleiddur úr mýkri viðartegundum en ekki úr harðviði. Viðarspænirnir eru lagðir í kross þannig að æðarnar snúa alltaf hornrétt (90°) á næsta lag á undan og eftir. Lögin eru síðan pressuð saman við hita og límd saman með sterku lími. Krossviður er mjög stöðugur viður sem hvorki verpist né rýrnar vegna þess að æðarnar liggja í kross og toga þannig í allar áttir.
- Þrívíddarprentun er ferli þar sem þrívíður hlutur er búinn til úr efnum sem eru lögð niður lag fyrir lag með aðstoð tölvu. Tæknin sem notuð er er mjög fjölbreytt. Sumir prentarar skera lögin út með geislaskurðarvél og líma þau svo saman og vinna þá með þunnar filmur úr málmi eða pappír. Aðrir þrýsta út seigfljótandi efni sem harðnar fljótt eins og hitadeigt plast, málma, ljóshert plast eða bindiefni sem harðna við íblöndun herðis. Hluturinn verður smám saman til eftir því sem lögin hlaðast upp og harðna í tækinu sem notað er. Vinsælasta aðferðin er svokölluð FDM viðbótarframleiðsluþrívíddarprentun sem notast við þræði yfirleitt gerðir úr lífmassa sem 3D prentarinn notar til að leggja niður hvert lag.
- Segl eru framleidd úr ýmsum efnum og eru bæði gerð úr trefjastriga úr náttúrulegum eða tilbúnum trefjum og lagskiptri plastfilmu. Algeng seglaefni eru pólýesterstrigi (Dakron og Pentex) eða kevlarþræðir með plastfilmu límda yfir báðum megin. Seglagerð felst í því að hanna seglið (oftast gert með sérhæfðum tölvuforritum nú til dags), sníða efnið til (oft gert með laserskurðarvél), líma það saman í rétt form, sauma það saman og ganga frá jöðrum og kósum. Strigasegl eru meðhöndluð í lokin með kvoðu til að þétta þau og stífa. Áður fyrr voru segl börkuð með því að sjóða þau með kvoðuríkum trjáberki til að þétta þau.
© dict.cc Icelandic-English dictionary 2026
Contains translations by TU Chemnitz and Mr Honey's Business Dictionary (German-English only).
Links to this dictionary or to individual translations are very welcome!