5 translations
To translate another word just start typing!
- null hypothesis <H0, h0> = núlltilgáta {kv}
- null and void = ógildur
- to render / declare sth. null and void = að ómerkja e-ð
Show allUsage Examples Icelandic
- Indverski stærðfræðingurinn Pingala, sem uppi var á 4. eða 3. öld f.Kr. rannsakaði það sem við þekkjum í dag sem Fibbonaccirununa, ásamt Pascalsþríhyrningnum og tvíundarkerfi. Hann notaðist við einfaldan punkt til þess að tákna núll, en það er eitt af elstu dæmum um sérstakt tákn fyrir núll.
- Ef fastafallið tekur gildið núll, kallast það "núllfall".
- Talnakerfi er stærðfræðileg aðferð til að tákna tölur með endanlegum fjölda tölustafa. Í staðsetningatáknakerfi er notast við grunntölu, allar náttúrlegar tölur minni en grunntalan auk tölunnar núll. Aðrar tölur er síðan táknaðar sem summa af margfeldum grunntölunnar í heiltöluveldum. Algengast er tugakerfi með grunntölu tíu. Rómverskar tölur er ekki staðsetningatáknakerfi, enda var talan núll ekki notuð í því.
- Deilireglur eru flýti- eða hjálparaðgerðir t.a. kanna hvort tala sé deilanleg með annarri tölu, þannig að leifin verði núll, án þess að framkvæma deilinguna sjálfa. Hér verður einungis tekið fyrir tugakerfi fyrir tölur frá 1 til 15, en allar tölur ganga upp í tölunni núll.
- Vigursvið með "rót" núll nefnist rótlaust vigusvið.
- Vigursvið með sundurleitni núll hefur enga "uppsprettu".
- Launviðnám í jafnstraumsrás er núll.
- Núllstöð eða rót falls er í stærðfræði gildi fallsbreytu, sem gefur falli gildið núll. Núllstöð tvinngilds falls er þar sem stærð fallsins er núll, þ.e. þar sem bæði raunhluti og þverhluti fallsins eru núll. Almennt gildir að núllstöðvar falls "f"("x") eru fundnar með því að leysa jöfnuna "f"("x") = 0.
- Tölur í tvíundakerfinu eru vanalega lesnar staf eftir staf til að greina þær frá tölum í tugakerfinu. Þannig væri talan 100 í tvíundakerfinu (jafngildir 4 í tugakerfinu) borin fram "einn núll núll" en ekki "eitt hundrað".
- Í alþjóðlegri forritunarkeppni reyndist tóm skrá hlutskörpust sem minnsta „forrit“ í heimi. Hún var núll bæta löng, skilaði núll bætum á skjáinn og var þannig minnsta forritið sem gat endurgert sjálft sig. Vegna orðalags í keppnisreglum varð að taka þetta „forrit“ gilt, en reglunum var síðan breytt og þess krafist að forritin yrðu að vera meira en núll bæta löng.
- Slétt tala er tala, sem talan tveir gengur upp í, þ.e. deiling með tölunni „2“ gefur enga leif. Deiling með tveimur í núll gefur enga leif og núll telst því slétt tala. Allar tölur, þar sem síðasti tölustafur er slétt tala, eru sléttar tölur. Hinar tölurnar nefnast oddatölur.
- Beygjuskil (einnig hverfipunktur, sjá samheiti innan stærðfræðinnar') nefnist sá punktur á ferli falls þar sem sveigja ferils breytist. Nánar tiltekið þá er talað um að ferill tvídeildanlegs falls hafi beygjuskil í tilteknum punkti þegar önnur afleiða fallsins er núll og hún breytir jafnframt um formerki í punktinum. Ef fyrsta afleiða fallsins er einnig núll í þessum punkti þá er hann nefndur láréttur beygjuskilapunktur eða stallur.
- Markverðir stafir í tölu eru taldir frá fyrsta stafnum til vinstri í tölu sem er ekki núll, og síðan að seinasta stafnum sem ekki er núll í heilum tölum en alveg að seinasta tölustafnum í tölum sem hafa tugabrot.
- Talan einn er margföldunarhlutleysa, þ.a. ef margfaldað er með einum er útkoman alltaf jöfn hinni tölunni, sem margfaldað var með. Margföldun með núll gefur undantekningalaust útkomuna núll.
- Samlagning er í öllum tilvikum víxlin aðgerð, þ.a. ekki skiptir máli í hvaða röð tölur eru lagðar saman. Talan núll er samlagningarhlutleysa, þ.a. ef núll er lagt við tölu verður útkoman undantekningarlaust jöfn tölunni sem núll var lagt við.
- Margliðufall verður núll í núllstöð margliðunnar, en einnig ef margliðan er núllmargliða, en þá er margliðufallið vitaskuld alltaf núll.
- Í síðasta dæminu er talan 1 skrifuð sem tugabrot. Öll núll aftan við kommuna eru valfrjáls og óþörf, nema að, eins og í næstsíðasta dæminu, að eitthvað komi aftan við núllið. Þannig má rita eins mörg núll og verða vill.
- Stærðfræðingar eru ekki á einu máli um hvort telja eigi "núll" til náttúrlegra talna eða ekki, þó viðurkennt sé að núll var „fundið upp“ löngu seinna en „jákvæðu heiltölurnar“, t.d. notuðu rómverjar ekki núll. Aðeins er deilt um skilgreiningu þ.a. engu máli skiptir í raun fyrir stærðfræðina hvort núll sé „"náttúrulegt"“ eða ekki.
- Í tengslum við sjálfbærni þá mælir regla Hartwicks fyrir um endurfjárfestingu auðlindarentunnar og að viðhalda þannig gildum nettó fjárfestingarinnar sem núll. Ef gildið er minna en núll þá hefur fjárfesting verið meiri en hefði þurft að vera og ef það er meira en núll þá hefur fjárfesting verið minni en hefði þurft að vera.
- Vigur sem hefur öll stök núll, t.d. [...] eða [...] kallast núllvigur, og er ritaður [...] eða [...]. Núllvigur hefur enga stefnu og stærðina núll því [...] (sjá Pýþagórasarregluna) og er samkvæmt skilgreiningu samlagningarhlutleysa.
© dict.cc Icelandic-English dictionary 2026
Contains translations by TU Chemnitz and Mr Honey's Business Dictionary (German-English only).
Links to this dictionary or to individual translations are very welcome!